Þjónusta

Hugbúnaður og hýsing

Við þróum sérsniðin hugbúnaðarkerfi og bjóðum sveigjanlega hýsingu fyrir vefi, gagnagrunna og kerfi.

Hugbúnaðargerð

Sérsniðin hugbúnaðarkerfi

Við þróum hugbúnað utan um þarfir og vinnuferli hvers viðskiptavinar.

Austurnet býr yfir víðtækri reynslu af þróun stórra og smárra upplýsingakerfa. Lausnirnar okkar tengjast gagnagrunnum, vefþjónustum og öðrum kerfum eftir þörfum og eru þróaðar í nánu samstarfi við viðskiptavininn.

Við aðstoðum allt frá þarfagreiningu og ráðgjöf til þróunar, innleiðingar og áframhaldandi viðhalds. Áherslan er á lausnir sem einfalda vinnu, bæta yfirsýn og geta vaxið með starfseminni.

  • Sérsniðin kerfi

    Upplýsingakerfi, þjónustukerfi og sölulausnir byggðar utan um starfsemina.

  • Samþættingar

    Tengingar milli kerfa og vefþjónustur sem miðla gögnum á milli lausna.

  • Greiðslu- og gagnalausnir

    Tengingar við greiðslugáttir, gagnagrunna og önnur rekstrarkerfi.

Ertu með hugbúnaðarverkefni í huga?

Hafa samband

Hýsing

Sveigjanleg hýsing

Við hýsum vefi, gagnagrunna og hugbúnaðarkerfi á Linux- og Windows-umhverfum. Einnig bjóðum við sérsniðna hýsingu eftir samkomulagi.

Linux

Apache og MariaDB fyrir PHP-vefi og tengdar lausnir.

Windows

Microsoft IIS og SQL Server fyrir .NET-kerfi.

Afritun

Afritun og örugg geymsla afrita eftir þörfum.

Sérsniðin hýsing

Önnur uppsetning og þjónusta eftir samkomulagi.

Verðskrá

Grunnverð hýsingar

Mánaðarverð með VSK.

  • Grunnhýsing með HTTPS

    868 kr. á mánuði

  • Gagnagrunnur með vef

    868 kr. á mánuði

  • Stakur gagnagrunnur

    1.200 kr. á mánuði

  • Netfang · 100 MB

    372 kr. á mánuði

    Á léni í eigu Austurnets ehf.
  • Gagnamagn · 100 MB

    149 kr. á mánuði

Dæmi um hýsingarpakka

Pakkarnir sýna dæmigerða uppsetningu fyrir Joomla- eða WordPress-vefi.

Grunnuppsetning

1.885 kr. á mánuði

  • Hýsing á einu léni
  • 100 MB gagnamagn innifalið
  • HTTPS innifalið
  • Einn MySQL-gagnagrunnur
  • Afritun þrisvar í viku
  • Ótakmarkaður fjöldi netfanga

Með viðbótum

2.332 kr. á mánuði

  • Hýsing á einu léni
  • 400 MB gagnamagn innifalið
  • HTTPS innifalið
  • Einn MySQL-gagnagrunnur
  • Afritun þrisvar í viku
  • Ótakmarkaður fjöldi netfanga

Helstu skilmálar hýsingar

  • Í upphafi er gerður hýsingarsamningur.
  • Hýsing er greidd mánaðarlega, fyrirfram.
  • Ekki er innheimt sérstaklega fyrir uppsetningu heimasvæðis eða flutning á vef.
  • Fjöldi netfanga er ótakmarkaður.
  • Gagnamagn, þar með talið pósthólf, er mælt áður en reikningar eru sendir.
  • HTTPS-skilríki frá Let’s Encrypt fylgir grunnhýsingu.
  • Eigendur bera ábyrgð á uppfærslum og viðhaldi þeirra vefja sem eru hýstir.
Skoða þjónustuskilmála

Vantar þig aðra uppsetningu?

Hafa samband