Austurnet

Verkefni og lausnir

Við þróum eigin lausnir og sérsniðin kerfi í nánu samstarfi við viðskiptavini. Hér er yfirlit yfir helstu verkefni Austurnets.

Eigin lausnir

Verkefnin okkar

Vefir og kerfi sem við þróum, eigum og rekum.

  • Frítími

    Orlofshúsavefur fyrir félög, meðal annars starfsmanna- og stéttarfélög. Kerfið heldur utan um orlofseignir og auðveldar félagsmönnum að bóka þær á einum stað.

    Opna Frítíma
  • Hlunnindi

    Vefur fyrir sölu og umsýslu rjúpnaveiðileyfa. Þar geta veiðimenn skoðað veiðisvæði og framboð og keypt leyfi á einum stað.

    Opna Hlunnindi
  • MeterKeeper

    MeterKeeper er kerfi fyrir umsýslu snjallmæla hjá hitaveitum og öðrum veitum. Lausnin auðveldar fyrirtækjum að halda utan um mæla og tengdar upplýsingar á einum stað.

    Opna MeterKeeper
  • Matgat

    Matgat safnar hádegismatseðlum veitingastaða á Egilsstöðum á einn stað, svo auðvelt sé að sjá hvað er í boði hverju sinni.

    Opna Matgat
  • Ferðir frá Egilsstöðum

    Vefur sem tekur saman beinar ferðir frá Egilsstöðum og auðveldar fólki að sjá hvaða áfangastaðir og ferðatilboð eru í boði.

    Opna Ferðir frá Egilsstöðum

Sérsniðnar lausnir

Samstarfsverkefni

Sérsniðnar lausnir sem við þróum í nánu samstarfi við viðskiptavini.

  • Total

    Heildstætt félagakerfi fyrir verkalýðsfélög. Lausnin styður meðal annars umsýslu félagsmanna, orlofseigna, skilagreina, styrkja og dagpeninga.

    Opna Total
  • MIS kerfið

    Kerfi fyrir umsýslu birgða og varahluta á álverssvæðum Alcoa. Auk myndrænnar framsetningar birtir það yfirlit og gröf úr innkaupagögnum og er notað í fleiri en einu landi.

    Lokað kerfi
  • Birgjagáttin

    Veflausn fyrir nýskráningu og forval birgja hjá Alcoa Fjarðaáli. Þar skrá birgjar upplýsingar um rekstur, öryggismál og önnur atriði áður en samstarf hefst.

    Lokað kerfi
  • Bókunarsíða Vök Baths

    Bókunarkerfi fyrir heimsóknir í Vök Baths. Lausnin heldur utan um val á dagsetningu, tíma og aðgangi og leiðir gesti í gegnum bókunarferlið.

    Opna bókunarsíðu Vök Baths